„trumponomics“ er ekki stefna repúblikana

Áhrif kjörs Donalds Trump á efnahag bandaríkjanna og víðar er í eldlínunni. Nú er mikið rætt um efnahagsstefnu hans sem nefnd er Trumponomics. Friðrik Már Baldursson, hagfræðingur og prófessor við Háskólann í Reykjavík, segir á Þjóðbraut í kvöld að sjá megi líkindi með hugmyndum Trump og Silvio Berlusconi, fyrrverandi forseta Ítalíu sem skildi efnahag landins eftir í molum.  

Friðrik bendir á að skattalækkanir sem Trump boðar séu mestar fyrir það eina prósent bandaríkjamanna sem teljast ofurríkir en minnstar fyrir lágstéttina. Þá sömu og veitti Trump brautargengi. Hinn nýji forseti ætlar þó að reka úr landi innflytjendur sem starfa ólöglega á vinnumarkaði og eru á sakaskrá fyrir minnstu sakir. Þetta eru um tvær og hálf milljón manns í bandaríksu atvinnulífi, bendir Friðrik á.

Efnahagshugmyndir Trump eiga lítið skylt við hefðbundna hægri stefnu Repúblikana í þeim efnum, bendir Friðrik enn fremur á. Þeir leggja áherslu á frjáls viðskipti á milli landa og lítil útgjöld ríkisins. Trump boðar hið gagnstæða, og án þess að leggja til hvaðan tekjur eigi að koma. Þá eigi hugmyndir Trump aðeins samsvörun með popúlisma þar sem stórum loforðum er kastað í allar áttir.

Friðrik Már verður með erindi á opnum hádegisfundi í Háskólanum í Reykjavík á morgun ásamt fleirum.