Trump velur nýjan efnahagsráðgjafa

Donald Trump hefur valið sjötugan fyrrverandi sjónvarpsþáttastjórnanda, Larry Kudlow, sem helsta efnahagsráðgjafa sinn. Kudlow starfaði í Hvíta húsinu í stjórnartíð Ronalds Reagan og kemur í stað Gary Cohn, sem hætti nýlega vegna ágreinings við Trump, meðal annars um verndartolla. Þess vegna kemur ef til vill á óvart að Trump velji Kudlow, því hann er talinn eindreginn talsmaður frjálsra milliríkjaviðskipta og andstæðingur tollmúra eins og Trump vill nú reisa kringum stál- og álframleiðslu Bandaríkjanna.