Trump trompar kína í tollastríðinu

Donald Trump Bandaríkjaforseti, hótar að bæta enn í tollahækkanir á kínverskum vörum, eftir að Kínverjar svöruðu með föstu skoti í gær í stigvaxandi viðskiptastríði þjóðanna.

Nú vill Trump bæta innflutningstollum á kínverskar vörur að verðmæti 100 milljarða dala í viðbót við þær vörur að verðmæti 50 milljarðar á ári sem áður var tilkynnt að yrðu tollaðar, að því er kom fram í tilkynningu frá forsetanum í gærkvöldi.

Trump segist enn reiðubúinn til samningaviðræðna en bara ef þær snúist um „frjáls, sanngjörn og gagnkvæm viðskipti.“