Trump staðfestir greiðslur til stormy

Donald Trump viðurkenndi í dag að hafa endurgreitt Michael Cohen einkalögmanni sínum 130 þúsund dala greiðslu, sem Cohen lagði út fyrir til að tryggja þögn klámmyndaleikkonunnar Stormy Daniels um samband hennar og Trumps.

Forsetinn hefur hingað til að mestu ekkert sagst vita um samninginn við Daniels.

Útskýringin á fyrirkomulaginu við greiðslurnar kemur fram í nokkrum Twitterfærslun Trumps í dag, sem þykja þess eðlis að hafa verið samdar með aðstoð lögmanna. Þar er skýrt tekið fram að engir peningar hafi verið greiddir af hálfu framboðsins.

Rudy Giuliani, sem er nýgenginn til liðs við lögmannateymi forsetans, upplýsti í gærkvöldi að Donald Trump hefði endurgreitt Cohen.

 

Mr. Cohen, an attorney, received a monthly retainer, not from the campaign and having nothing to do with the campaign, from which he entered into, through reimbursement, a private contract between two parties, known as a non-disclosure agreement, or NDA. These agreements are.....

— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) May 3, 2018

...very common among celebrities and people of wealth. In this case it is in full force and effect and will be used in Arbitration for damages against Ms. Clifford (Daniels). The agreement was used to stop the false and extortionist accusations made by her about an affair,......

— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) May 3, 2018

...despite already having signed a detailed letter admitting that there was no affair. Prior to its violation by Ms. Clifford and her attorney, this was a private agreement. Money from the campaign, or campaign contributions, played no roll in this transaction.

— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) May 3, 2018