Trump ryður slóð fyrir aðra

Þó Donald Trump verði undir í forsetakosningunum er nokkuð víst að hann hafi með framgöngu sinni og málflutningi sýnt að á þeim akri sem hann hefur verið sé mikið fylgi að fá og aðrir frambjóðendur síðar muni nýta sér það í framtíðinni.

Þetta er nokkuð samdóma álit þeirra Friðjóns R. Friðjónssonar og Kristrúnar Heimisdóttur sem verða gestir í Þjóðbraut í kvöld. Þátturinn er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.

Þau segja að Repúblikanaflokkurinn geti allt eins jafnað sig fljótt á því áfalli sem hann kann að hafa orðið fyrir. Það ráðist af því hvaða fólk verður í stafni flokksins á næstu tímum.

Friðjón er sannfærður um að Hillary Clinton sigri, en Kristrún óttat þann möguleika að Trump sigri.

-sme