Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hrifinn af dauðrefsingunni gegn fíknefnasölu sem gildir í Singapore og talar oft í samtölum við trúnaðarvini um að fíkniefnasalar ættu að hljóta dauðadóma. Þetta kemur fram í frétt tímaritsins Axios og er haft eftir heimildamönnum sem rætt hafa við forsetann.
Hann hefur sagt að hann myndi vilja lagabreytingar sem heimiluðu dauðarefsingu fyrir fíkniefnasölu en um leið viðurkennt að slík lög fengjust líklega aldrei samþykkt.
Kellyanne Conway talsmaður forsetans segir í samtali við Axios að Trump ætli ekki að krefjast harðari refsinga fyrir vægari fíkniefnabrot en vilji taka hart á þeim sem standa að stórfelldri dreifingu banvænna eiturlyfja.