Trump opinn fyrir fundi með putin

Talsmenn Donalds Trumps taka vel í hugsanlegan fund með Vladimir Putin og að hann verði haldinn í Hvíta húsinu.

Samkvæmt frétt í New York Times í morgun hafði Kremlin verið að minna á að Trump hafði stungið uppá slíkum fundi í símtali við Putin áður en kom til deilnanna vegna taugaeitursárásarinnar í Salisbury.

Í AP frétt í morgun um hugsanlegan fund leiðtoganna er svo haft eftir Söruh Huckabee Sanders, fjölmiðlafulltrúa Trumps, að Hvíta húsið sé einn mögulegra fundarstaða sem ræddir hafi verið í símtali forsetanna í síðasta mánuði.

Þetta yrði fyrsta heimsókn Putins til Washington í meira en áratug. Hvorgur aðili segist byrjaður að undirbúa slíkan fund, sem gagnrýnendur segja allt of veglegan virðingarvott við Putin á þessu stigi í samskipta við Rússa. „Ekkert í sambandi við þetta er eðlilegt,“ segir Alina Polyakova, sérfræðingur í samskiptum þjóðanna í frétt AP.