Trump nærir gremju hvíta karlsins

Hver svo sem úrslitin verða í bandarísku forsetakosningunum munu þær skilja eftir opið sár í amerísku samfélagi - og fari svo, sem líklegt er, að Hillary Clinton hafi betur gegn Donald Trump þá mun risastór hópur bandarískrar millistéttar sitja eftir með sárt ennið.

Þetta er mat fyrrverandi fréttamannanna Gunnars Hrafns Jónssonar og Kristins Hrafnssonar sem greina bandarísku forsetakosningarnar í fréttaskýringaþættinum Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld.

Þeir þekkja gjörla til bandarískra stjórnmála og þjóðlífsins vestra og segja að bandarísk stjórnmál séu svo að segja að umpólast; Clinton sé táknmynd kerfisins og fjármálaflanna á meðan Trump sé að mörgu leyti málsvari hvíta millistéttarkarlsins sem hafi orðið óbeit á kerfinu og líti í raun og sann á sig sem undirokaðan hóp, gott ef ekki í útrýmingarhættu; ameríski draumurinn um að komast til efna í eigin krafti sé að baki, heilu og hálfu þjóðfélagshóparnir sitji eftir fastir í sínu fari og komist hvergi - og Trump næri gremju alls þessa hóps.

Þeir telja að velgengni Trump muni skilja eftir varanleg sár í Repúblikanaflokknum, en forsetakjör Clinton muni líka skilja eftir opin sár í Demókrataflokknum; umbótakrafan sem leidd var af stuðningsfólki Bernie Sander muni ekki fá brautargengi innan flokksins sem verði eftir sem áður kerfislægur og spegill hefðbundinnar stofnanapólitíkur með Hillary í forsæti.

Og svo hitt; kannski stafi heimsfriðnum meiri ógn af forsetakjöri Hillary Clinton en Donalds Trump þegar á allt sé litið. það verður útskýrt nánar í þættinum.

Ritstjórarnir byrja klukkan 21:30 í kvöld.