Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra skrifar: „Kvenfyrirlitning - rasismi - menntunarleysi. Ruddi, skattsvikari. Trump er yfirmaður Bandaríkjahers. Við höfum varnarsamning við Trump. Hvað nú, Ísland?“
Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður skrifar: „Ég veit ekki um neitt tímabil í mannkynssögu þar sem ekki er að finna hreint út sagt ótrúlegt magn af nautheimskulegum ákvörðunum hvort sem er meðal þjóðfélagsins eða leiðtoga þess.“
Og Egill Helgason: „Kannski er eitt einkenni Trumps að hann hefur í raun ekkert innihald, engan kjarna – hann er ekkert nema sýndarmennskan ein og einn möguleikinn er að nú reyni hann að ganga í augum á leiðtogum á alþjóðavettvangi – þ.e. öðrum en Pútín.“
Helga Vala Helgadóttir lögmaður skrifar: „Hvað er eiginlega að gerast í þessum heimi vinir? Hvernig getur það gerst að ofbeldishrotti, fauti, karl sem opinberlega hefur sýnt að hann er þjakaður af margskonar mannfyrirlitningu sigrar í forsetakosningum í lýðræðisríki? Eru þetta afleiðingar þess hversu illa upplýstir kjósendur eru? Hvað gerðist eiginlega?“
Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmaður VG skrifar: „Hvað er hægt að segja eftir hryllileg tíðindi næturinnar? Bandaríkin féllu á stóra prófinu. Vanhæfur,spilltur,lygari,kvenhatari og kynþáttahatari valin æðsti valdamaður þeirra. Úrslitin opinbera að Bandaríkin eru ekki lengur stórveldi,heldur ríki uppfullt af samfélagslegum innanmeinum sem ekki hefur tekist að lækna eða draga úr.“
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, skrifar: „Hræðileg niðurstaða fyrir allann heiminn.“
Ari Eldjárn: „What? The orange man in the high tower won?!?“
Gunnar Smári Egilsson: „Jæja. En Ítalir lifðu Berlusconi af, svo Bandaríkjamenn hljóta að finna leið til að lifa með þessu. Kaupið evrur.“