Donald Trump Bandaríkjaforseti íhugar nú að reka Rod Rosenstein aðstoðardómsmálaráðherra í því augnamiði að stöðva rannsókn Roberts Mueller sérstaks saksóknara. CNN hefur þetta eftir heimildum innan Hvíta hússins.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem vangaveltur um hvernig Trump geti losnað við rannsóknina komast í hámæli. Í júní í fyrra var Trump kominn á fremsta hlunn með að reka Mueller beint og New York Times upplýsti svo í gær að hann hefði ætlað að reka Rosenstein í desember — en nú hefur húsleit FBI hjá Michael Cohen, persónulegum lögmanni forsetans, í fyrradag ýtt af meiri krafti en áður undir þessar hugleiðingar.
Brottrekstur Rosensteins, sem ber ábyrgð á rannsókn Muellers af hálfu dómsmálaráuneytisins, er aðeins ein leiðin sem forsetinn skoðar nú í þessu samhengi. Annar möguleiki sem hann íhugar, og ekki í fyrsta skipti, er að losa sig við dómsmálaráðherrann sjálfan Jeff Sessions.
Samkvæmt frétt CNN hafa átt sér stað viðræður um málið milli Hvíta hússins og leiðtoga repúblíkana í þinginu, en þeir þingmenn sem hafa tjáð sig um málið hafa eindregið varað forsetann við því að stöðva rannsóknina.
Sarah Sanders, fréttafulltrúi Hvíta hússins var spurð um málið í gær. Hún vildi ekki segja hvort hvort Trump hefði rætt um að reka Mueller eða Rosenstein nýlega, en sagði líka að forsetinn teldi það sannarlega vera í valdi sínu að reka Mueller.