Trump: húsleitin er árás á land okkar

Donald Trump Bandaríkjaforseti skammaðist heiftarlega út í sérstakan saksóknara og Rússarannsókn hans í gær eftir að alríkislögreglan FBI gerði húsleit á skrifstofu og heimili Michaels Cohen, persónulegs lögmanns Trumps.

„Þetta er árás á land okkar í raun réttri. Þetta er árás á það sem við öll stöndum fyrir,“ sagði Trump, aðspurður um húsleitina við opinbert tækifæri í gær og endurtók það sem hann hefur áður sagt, að Jeff Sessions dómsmálaráðherra hafi gert mistök í því að segja sig frá yfirstjórn rannsóknar Roberts Muellers, sérstaks saksóknara.

„Þetta eru algjörar nornaveiðar,“ sagði Trump.

Húsleitin í gær, sem gerð var samkvæmt tilmælum Muellers á skrifstofu Cohens, heimili hans og á hótelherbergi á Manhattan, heggur nær forsetanum og hans innsta hring heldur en nokkuð annað í rannsókninni fram að þessu.

Samkvæmt fréttum The New York Times og Washington Post lagði FBI hald á gögn sem tengjast 130 þúsund dala greiðslu Cohens til fyrrum klámmyndaleikkonunnar Stormy Daniels skömmu fyrir forsetakosningarnar í nóvember 2016 og ætluð var til þess að tryggja þagmælsku hennar um samband þeirra Trumps. Hugsanlega er um að ræða samksipti Cohens og Trump um málið.

Auk þess var lagt hald á gögn sem tengdust öðrum málum, en Cohen er meðal annars til rannsóknar vegna skjalafals og brota á kosningalögum. Meðal þess sem rannsakað er, samkvæmt frétt New York Times, er 150 þúsund dala framlag frá úkraínskum milljarðamæringi til Trump-stofnunarinnar árið 2015, sem Cohen hafði milligöngu um.