Ekkert útlit er fyrir að Donald Trump losni við Stormy Daniels í bráð, klámmyndaleikkonuna fyrrverandi, sem segist hafa átt í ástarsambandi við Trump 2006 og 2007, þegar hann var nýgiftur Melaníu Trump.
Daniels, sem réttu nafni heitir Stephanie Clifford, höfðaði mál gegn forsetanum í vikunni til að fá gert ógilt þagnarsamkomulag sem lögmaður Trumps, Michael Cohen, gerði við hana rétt fyrir kjördag 2016.
Tvennt nýtt gerðist svo í málinu í dag. Annars vegar kom í ljós að nýtt viðtal hefur verið tekið við Clifford til birtingar í sjónvarpsþættinum 60 Minutes á CBS. Hitt var að lögmaður Trump varð uppvís að því að hafa ekki sagt satt og rétt frá í málinu. Cohen hafði áður sagt að 130 þúsund dala greiðsla til Clifford hafi komið úr hans eigin vasa og fyrirtæki Trumps komið þar hvergi nærri. Nú kemur á daginn að hann notaði netfang sitt hjá Trump samsteypunni þegar hann gekk frá greiðslunni og í samningum sínum við lögmenn Clifford.
Ekki liggur fyrir hvenær sjónvarpsviðtalið verður sýnt, en það tók Anderson Cooper, sjónvarpsmaður CNN sem hefur um nokkurt skeið einnig unnið við 60 Minutes.