Trump: herlið til landamæranna

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sagðist í gær ætla að senda herlið til að verja landamærin við Mexíkó. „Við ætlum að gera þetta hernaðarlega,\" sagði Trump. Í fyrstu var ekki ljóst hvers eðlis þessi hergæsla yrði, enda er herútkvaðning ekki möguleg með einfaldri forsetatilskipun. Síðar var útskýrt af hálfu Hvíta hússins að þjóðvarðliðar yrðu sendir til landamæranna.

Trump sagði þetta vera stórt skref og mikilvægt til að tryggja öryggi landsins þangað til að múr yrði settur upp á landamærunum. „Þangað til mun herinn gæta landamæranna.\"

Stór hópur fótgangandi fólks frá Mið- og Suður Ameríku hefur sést á leið í samfloti norður um Mexíkó á leið til Bandaríkjanna. Trump hefur haft í hótunum á Twitter við Mexíkó og Mið-Ameríkuríkin um að stöðva fólkið, ella muni Bandaríkin annað hvort rifta NAFTA samkomulaginu eða hætta þróunar- og neyðaraðstoð.

Barack Obama sendi á sínum tíma um 1.200 manna lið úr þjóðvarðarsveitunum til að gæta landmæranna og George W. Bush um 6.000 manna lið í sinni forsetatíð.