Trump hakkar sessions aftur í sig

Donald Trump er aftur farinn að andskotast í dómsmálaráðherranum sínum, Jeff Sessions.

Í Twitterfærslu í morgun sagði Trump það vera skammarlegt hvernig Sessions virtist ætla að sýna linkind í rannsókn á veitingu hlerunarheimilda. Repúblíkanar hafa hneykslast á veitingu hlerunaheimilda í tengslum við Rússarannsókn Roberts Mueller, sérstaks saksóknara.

Sessions svaraði gagnrýni forsetans síðdegis og sagði að tekið væri á öllum athugasemdum um framgöngu dómsmálaráðuneytisins með sanngirni að leiðarljósi og svo lengi sem hann væri dómsmálaráðherra myndi hann framfylgja starfsskyldum sínum af heilindum og með sóma.