Trump: gamanið er farið að kárna!

\"Gamanið er heldur betur farið að kárna, það eru sex eða átta mánuðir síðan ég sat hérna og sagði þá að þetta væri ekki möguleiki. Enginn stjórnmálafræðingur hélt að þetta gæti gerst,\" segir Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur um sigra Donalds Trump og stöðuna í bandarísku forsetakosningunum.

Fylgi Donalds Trump hefur aukist mjög og vann hann stóra sigra í mörgum fylkjum Bandaríkjanna í nótt. Fátt virðist geta komið í veg fyrir að hann verði forsetaefni Repúblikana en Hilllary Clinton fyrir demókrata.

Silja Bára segir að ef Trump sigri leiði hann flokk sinn á allt aðra staði en Repúblikanar hafi nokkru sinni verið staddir á.

Fræðingar víða um heim hafa lýst miklum áhyggjum af framgöngu Trump. Eins og staðan er núna er alls ekki hægt að útiloka að þessi stóryrti auðmaður sem alið hefur á ótta og sundrungu með orðræðu sinni í forvalinu verði valdamesti maður lands. Hernaðarstefna Bandaríkjanna og vopnavald sem Trump talar fyrir er eitt af því sem stór hluti heimsbyggðarinnar hefur áhyggjur af.

Í viðtali við Silju Báru á Rúv í morgun, sagði hún að minni líkur en meiri væru þó á að því Trump myndi sigra í kosningu gegn Hillary Clinton.