Trump: enn einn þagmælskusamningurinn

Í ljós er kominn enn einn þagmælskusamningurinn um kvennamál Trumps Bandaríkjaforseta.

Þetta er samkomulag sem slúðurblaðið The National Enquirer gerði árið 2015 við dyravörð í Trump-­turn­inum í New York, sem sagðist vera með upplýsingar um Trump. Útgefandi slúðurblaðsins, David Pecker, er vinur Trumps og eins og í tilviki Playboy fyrirsætunnar Karen McDougal, sem skýrði nýlega frá álíka samningi við sig, var dyraverðinum greitt fyrir söguna, en hún síðan aldrei birt. Í samningnum var kveðið á um að dyravörðurinn þyrfti að greiða 1 milljón dala sekt ef hann skýrði frá þessum upplýsingum án leyfis American Media, Inc., útgefenda National Enquirer. 

Dyravörðurinn, Dino Saju­din, fékk 30 þúsund dala greiðslu fyrir upplýsingar sem hann hafði heyrt um að Trump hefði barnað konu sem vann hjá fyrirtækinu seint á níunda áratugnum. Sex starfsmenn A.I.M. segja í samtölum við tímaritið The New Yorker að Sajudin hafi skýrt blaðamönnum slúðurblaðsins frá nafni konunnar og barnsins.

Hvorki konan ný barnið vilja ræða málið en faðir fjölskyldunnar segir þetta tóma vitleysu og skilur ekki „fyrir hvað þeir þurftu að borga þessum náunga.“ The New Yorker segist ekki hafa fundið sannanir fyrir því að Trump hafi feðrað barnið.

Í AP frétt um málið í dag er haft eftir aðstoð­ar­rit­stjóra National Enquirer að heimildin hafi ekki þótt nægilega trúverðug til að birta frétt um málið, en blaðið hafi greitt Saju­din fyrir upplýsingarnar því það hefði selt hundruð þúsunda eintaka að blaðinu ef sagan reyndist sönn. AP segir í fréttinni hafa staðfestingu á að Michael Cohen einkalögmaður Trumps hafi rætt við starfsmenn A.M.I. um mál dyravarðarins.

Í New Yorker fréttinni í dag er haft eftir blaðamönnum Inquirer að útgefandinn, David Packer, hafi stöðvað birtingu greinarinnar.