Trump eitt það besta sem hefur komið fyrir grænland

„Eitt það besta sem komið hefur fyrir Grænland á seinni tímum er að Trumps skyldi lýsa því yfir að hann vildi kaupa Grænland. Þetta er besta auglýsing sem Grænland hefur nokkurn tímann fengið. Næstu árin verður algjör sprengja í ferðamennsku til Grænlands og þetta kemur Grænlandi á kortið.“

Þetta segir Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og höfundur bókarinnar Norðurslóðasókn. Hann verður gestur Björns Jóns Bragasonar í þættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Heiðar þekkir vel til á Grænlandi og hefur komið þangað reglulega undanfarin tuttugu ár. Grænland hefur mikið verið til umfjöllunar undanfarin misseri vegna bráðnunar jökla en hvernig horfa þau mál við Grænlendingum? Grípum niður í viðtalið við Heiðar:

„Grænlendingar sjá fram á bjartari tíma. Þeir sem helst eiga eitthvað undir ís eru veiðimennirnir og veiðimannasamfélögin standa höllum fæti því unga fólkið vill ekki lifa þessu lífi. Það vill lifa meira hefðbundnu borgarlífi og nú þegar samfélagsmiðlar og upplýsingatæknin eru komin og þau sjá hvernig hægt er að lifa annars staðar þá kýs unga fólkið með fótunum.“

Heiðar segir að Nuuk, höfuðstaður Grænlands, sé myndarlegur og nútímalegur bær sem vaxi hratt og þar eigi bæði kynin tækifæri á að skapa sér gott lífsviðurværi:

„Möguleikarnir í borgunum eru meira spennandi gagnvart báðum kynjum. Það eru bara karlar sem eru veiðimenn, engar konur. Konur hafa hlotið menntun og geta núna sótt sér störf, svo lengi sem þær búa í borgunum. Börnin þeirra geta þá líka tekið þátt í tómstundum, farið í tónlist, stundað íþróttir og annað þvíumlíkt. Allt þetta kemur saman til að þrýsta fólki inn í nútímann og það er þeirra ósk að lifa nútímalegu lífi og það á eftir að breyta ýmsu.“

Raforkusæstrengur til Grænlands?

Heiðar segir mikil tækifæri í samvinnu Íslands og Grænlands og þar séu gríðarlegir möguleikar til námuvinnslu og virkjunar fallvatna:

„Grænlandsjökull er stærsti birgðamassi af hreinu vatni í heiminum. Það er þannig með jöklana að þegar þeir bráðna þá renna þeir til sjávar. Frændur okkar Norðmenn segja þegar þeir sjá óbeislað vatnsafl, sérstaklega jökulvatn: Þetta er orkusóun. Þetta er slæmt.

Á Grænlandi eru stórir möguleikar í virkjun fallvatna og menn hafa skoðað á vesturströndinni að tengja sæstreng yfir til Kanada en ég var að fjalla um það í bókinni minni að það væri auðvelt fyrir austurströndina að tengjast í gegnum Ísland ef að sæstrengur lægi til Íslands. Það væri þá hægt að nota Ísland sem miðstöð – taka orkuna frá Grænlandi og svo áfram.“