Jafnmargir segja nú að Donald Trump Bandaríkjaforseti standi sig illa í starfi og þeir sem það gerðu um Richard Nixon þegar hann sagði af sér vegna Watergate-hneykslisins árið 1974. Ný skoðanakönnun bendir til þess að 45% Bandaríkjamanna telji Trump standa sig illa sem forseti.
Vinsældir Trump hafa verið litlar en stöðugar í könnnunum í lengri tíma. Margir hafa sagst óánægðir með störf hans.
Í nýrri könnun á vegum Marist-háskóla töldu 20% svarenda að Trump stæði sig frábærlega, 20% nokkuð vel, 13% allt í lagi og 45% illa. Mikill munur er á afstöðu svarenda eftir því hvaða flokk þeir styðja. Þannig telja aðeins 2% demókrata að Trump standi sig frábærlega en 49% repúblikana. Á móti telja 80% demókrata að Trump standi sig illa en aðeins 6% repúblikana.
Nánar á
ttp://www.visir.is/g/2018180819748/trump-eins-ovinsaell-og-nixon-var-vid-afsognina