Trump eins hættulegur og hitler

Það er ekki lengur gert grín að Donald Trump forsetaframbjóðanda og auðmanni. Æ fleiri blaðamenn, rithöfundar og álitsgjafar um heim allan hafa nú lýst honum sem einum hættulegasta manni samtímans.

Í þá för slæst blaðakonan og rithöfundurinn Megan Garber í grein í Atlantic. Hún rekur sögu lýðskrumara eða múgæsingarmanna og telur Trump falla í þann flokk.

Í greiningu Garber á Trump sem ógn gegn almannahagsmunum segir hún að honum hafi verið líkt við Hitler. Ekki sé það einungis þannig að múgæsingarmaðurinn og lýðskrumarinn Trump höfði til fólks með of litlar bjargir í lífinu til að átta sig á muninum á góðri stefnu og skaðlegri heldur ógni hann sjálfu lýðræðinu með orðum sínum og athöfnum.

“Múgæsingarmenn eru ekki bara ógn við úrslit kosninga eða stjórnmálahreyfingar heldur ógna þeir sjálfu lýðræðinu.“

Garber rekur samband múgæsingar, fjölmiðla og afstæðishyggju. Hún segir að gott lýðræði þoli aðeins ákveðið magn af afstæðishyggju.

Hún varar við að Trump geti orðið „tyran“ eða harðstjóri ef almenningur sjái ekki í gegnum boðskap hans.

Sjá alla greinina hér.