Trump er ógnun við fjölmiðlafrelsi

Donald Trump Bandaríkjaforseti, Rússland og Kína eru helstu ógnir við fjölmiðlafrelsi í heiminum í dag.

Þetta er niðurstaða skýrslu samtakanna RSF, Fjölmiðlar án landamæra, sem kemur út í dag, að því er segir í frétt á RÚV.
Þar segir að valdhafar reyni í auknum mæli að skikka fjölmiðlamenn til hlýðni með hótunum. Þrjú valdamestu ríki heimsins, Bandaríkin, Kína og Rússland, eru þar hvað verst samkvæmt skýrslunni. Evrópskir popúlistaflokkar með valdamikla leiðtoga eru á sama hátt ógn í þeim löndum sem þeir hafa náð framgangi, til dæmis í Ungverjalandi, Slóvakíu og Póllandi.

Christophe Deloire, formaður RSF, segir hatur í garð fjölmiðlamanna hættulegt og ógn við lýðræði. Stjórnmálamenn sem kyndi undir slíkt hatur grafi undan almennri umræðu byggðri á staðreyndum í stað áróðurs. Fjandsemi í garð fjölmiðla einskorðist ekki lengur við lönd á borð við Tyrkland og Egyptaland. Sífellt fleiri lýðræðislega kjörnir leiðtogar sjái fjölmiðla ekki lengur sem eina af grunnstoðum lýðræðisins, heldur sem andstæðing sem þeir lýsa andúð sinni opinberlega á. Eru þrír leiðtogar sérstaklega tilteknir í skýrslunni, Trump, Narendra Modi Indlandsforseti og Rodrigo Duterte, leiðtogi Filippseyja, segir í frétt RÚV.

Mest fjölmiðlafrelsi ríkir í Noregi samkvæmt ársskýrslunni og nágrannar þeirra í Svíþjóð eru næstir. Ísland er í þrettánda sæti á listanum. Neðstu ríkin eru Norður-Kórea, Erítrea og Túrkmenistan.