Trump: ég hefði hlaupið inn í skólann

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist halda að hann hefði hlaupið inn í skólann í Parkland í Florida og ráðist - jafnvel óvopnaður - gegn byssumanninum.

\"Sko, ég held í alvöru...maður veit það náttúrulega ekki fyrr en maður prófar það... en ég held í alvörunni að ég hefði hlaupið inn, jafnvel þó ég hefði ekki verið með vopn. Og ég held að flestir hérna inni hefðu gert það sama, af því ég þekki flest ykkar. En hvernig þeir höguðu sér (lögreglumennirnir á staðnum þegar byssumaðurinn myrti 17 manns) var algjör hneisa.\"

Byssuumræðan í kjölfar skólamorðanna 14 febrúar síðastliðinn er enn í hámæli. Trump lét þessi orð falla á fundi um með ríkisstjórum um helgina þar sem hugsanlegar úrbætur voru ræddar. Trump kveðst m.a. reiðubúinn að hækka leyfilegan byssukaupaaldur úr 18 árum í 21 og banna ákveðna tegund hríðskotabúnaðar (bump stock) sem hægt er að setja á riffla. Óvíst er með öllu hvort slíkar breytingar næðu í gegnum Bandaríkjaþing eða hvort einstaka ríki myndu taka af skarið. Trump hefur líka gerst talsmaður þess að vopna kennara til að verjast skólaárásum.

Framhaldsskólanemendur í skólanum í Parkland snúa aftur í skólann í vikunni. Þau mynda nú kröftuga forystu byssuandstæðinga í Bandaríkjunum og hreyfingin #NeverAgain  vex og verður kröftugri með hverjum degi. Einn nemendanna, Emma González (@Emma4Change) hefur nú nánast helmingi fleiri fylgjendur á Twitter (1,05 milljónir) heldur en NRA, samtök byssueigenda. Oprah Winfrey og hjónin George og Amal Clooney styrktu hreyifinguna með 500,000 dala framlögum í síðustu viku.

Þann 14. mars áforma nemendasamtökin útgöngu í öllum skólum landsins og þann 24. mars verður allsherjar mótmælagangan March For Our Lives farin að þinghúsinu í Washington.

YOUTUBE myndbandið með Trump