Trump boðar heimkvaðningu frá sýrlandi

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað hernum að hefja undirbúning á heimkvaðningu bandarískra hermanna frá Sýrlandi.

Samkvæmt frétt Washington Post nú síðdegis lagði Trump áherslu á það á fundi með varnarmálafulltrúm að herinn mætti áfram sinna öryggisgæslu á þeim svæðum sem þegar hafa verið frelsuð frá yfirráðum Íslamska ríkisins.

Jafnframt var haft eftir embættismönnum að Trump hafi sagt að hlutverk Bandaríkjanna í stríðinu mætti ekki víkka út fyrir það að ráða niðurlögum Íslamska ríkisins.