Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í ávarpi á sjöunda tímanum að Bandaríkin hefðu dregið sig út úr kjarnorkusamkomulaginu við Íran frá 2015.
Forsetinn sagði samninginn glataðan og rotinn og að Íranir hefðu haldið áfram að koma sér upp kjarnorkuvopnum og nú væri svo komið að þeir ógnuðu nágrannaþjóðum sínum í Austurlöndum nær.
Trump boðaði jafnframt að aftur yrðu settar á þyngstu mögulegu viðskiptaþvinganir á Íran.
Leiðtogar Frakklands, Þýskalands og Bretlands hafa að undanförnu reynt að fá Trump ofan af því að segja Bandaríkin frá samkomulaginu, en allt hefur komið fyrir ekki.