Vilhjálmur er ósáttur með þau orð Bjarna Benediktssonar að náist samkomulag um SALEK, hafi verið skapaðar alvöru forsendur fyrir vaxtalækkun.
„Ef þið eruð tilbúin að láta skerða samningsfrelsið ykkar við kjarasamningsgerð þá geta vextir hugsanlega lækkað. Og hugsið ykkur, núna á að halda því fram að vextir á Íslandi séu svo háir vegna þess að launafólk hefur verið að fá of miklar launahækkanir. Hvað er að þessum mönnnum,“ segir Vilhjálmur.
Hann er alfarið á móti að SALEK nái fram að ganga.
Þá finnur hann að launahækkun Ólafíu B. Rafnsdóttur, formanns VR og fyrsta varaforseta ASÍ.
Vilhjálmur er á dagskrá klukkan 21 í kvöld.