Eyjólfur Pálsson, kaupmaður í Epal og stofnandi fyrirtækisins er gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli í kvöld. Eyjólfur er því næst orðinn goðsögn í heimi hönnunar og verslunar hérlendis með vörur sem hann kom með heim frá Danmörku fyrir löngu síðan eða í kringum árið 1975.
Epal er undir dönskum áhrifum og hefur verið veitt helstu verðlaun í Danmörku í húsgagnaiðnaði en sjálfur lærði Eyjólfur húsgagnasmíði í Rússlandi og húsgagnaarkitektúr í Danmörku.
Eyjólfur segir að sér hafi verið á sérstakan hátt vísað á sína þriðju eiginkonu. Aðspurður hvernig það bar að segir hann: „Það var kona sem ég kannaðist við sem sendi mig þriðja júlí klukkan þrjú 2013 niður í Hljómskálagarð og sagði mér setjast á bekk þar, þar myndi koma stutthærð flott kona að hitta mig. Og það gerðist og við erum búin að vera saman síðan“.
Hann segist trúa á tilviljanir og á hið yfirnáttúrulega og yfirskilvitlega sömuleiðis en aðspurður um hið nýtilkomna hugtak „Epalhommi“, þá segir Eyjólfur að þar hafi aldrei verið spurning en að halda því á lofti. Fræg auglýsing var sett í blöð með nettu Epal merki í horninu og landsþekktum hommapörum að dást að Epal innbúi. „Þetta breytti allri umræðunni“, segir Eyjólfur og bætir við „á jákvæðan hátt“.
Mannamál er á dagskrá Kl.20:30 alla miðvikudaga og svo endursýnt og á flakkaranum.