Þjóðin treystir ekki forkólfum sömu ríkisstjórnar fyrir loforði um kosningar í haust og laug í þjóðina að hún fengi að kjósa um ESB.
Þetta sagði Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, í innblásinni ræðu á Alþingi í morgun þar sem hún sagði ráðamönnum ríkisstjórnar Sigurðar Inga til syndanna svo eftir var tekið.
Brynhildur ræddi m.a. að fáheyrt væri að enginn bæðist afsökunar á þeirri stöðu sem komin væri upp. \"Látum vera að þið áttið ykkur ekki á að ykkur ber að biðjast afsökunar, en hvar eru ráðgjafar ykkar?\" Brynhildur saði að sér væri misboðið fyrir hönd íslensku þjóðarinnar og krefst þess að stjórnin fari frá hið fyrsta. Hún hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með fólkið sem stýrt hafi landinu undanfarið.