Tómur en tignarlegur gígur blasti við þeim vísindamönnum sem komu að gígbarmi eldstöðvarinnar í Holuhrauni í gærdag. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur var einn þeirra sem þar var á ferð en hann metur það svo að gígurinn sé um 50 metra breiður og 40 metra djúpur. Hann segir í samtali við Morgunblaðið í dag að það hafi verið tröllslegt en um leið fallegt að horfa yfir gíginn í gærdag. Allt er landslagið á þessum slóðum heldur framandi mönnum, enda um yngsta hluta landsins að ræða. Hæsti tindur gígsins reygir sig eina 70 metra yfir meginhraunið, en sjálfur gígurinn er berggangur að lögun sem teiknar sig nærri 700 metra út frá Baugi.
Tröllslegur og tignarlegur
Fleiri fréttir
Nýjast