Treystir ekki alþingi fyrir haftafénu

Margrét Kristmannsdóttir kaupmaður og fyrrverandi formaður Samtaka verslunar og þjónustu óttast að freistnivandinn beri alþingismenn ofurliði ef ágóði ríkisins af losun hafta rennur beint í ríkissjóð.

Þetta kemur fram í nýjum pistli hennar á hringbraut.is, en þar segir hún að jafnvel þótt áætlun hafta sé góð skipti framhaldið öllu máli: \"Tryggja verður að þessir fjármunir leiti ekki út í hagkerfið heldur verði notaðir til niðurgreiðslu erlendra skulda,\" skrifar hún og heldur áfram: \"Viðvörunarbjöllur fara því óneitanlega af stað þegar að ríkissjóður á að verða viðkomustaður þessara fjármuna því freistnivandi stjórnmálamanna er mikill - ekki síst þegar styttist í kosningar.\"

Margrét kemur fram með tillögu sína, þó fyrst með þessum aðfaraorðum: \"Þegar núverandi ríkisstjórn ákvað að setja 80 milljarða í leiðréttingu á skuldum heimilanna var það fyrirkomulag haft á að ríkisskattstjóri hafði yfirumsjón með leiðréttingunni. Sú upphæð sem hvert og eitt okkar fékk var þó ekki millifærð inn á bankareikning okkar og okkur treyst til að sjá um niðurgreiðslu eigin lána. Þvert á móti var fjármununum ráðstafað milliliðalaust til lækkunar þeirra og var þetta fyrirkomulag án efa skynsamlegt og tryggði að fjármunir fóru þangað sem þeir áttu að fara.\"

Margrét leggur til að nú verði eins farið að, því fyrst ríkisstjórnin treysti ekki fólkinu fyrir að lækka sínar skuldir milliliðalaust, af hverju eigi fólkið þá að treysta ríkinu til að gera það sama. Í þessu ljósi sé lang skynsamlegast að ríkisskattstjóri verði fenginn til að gæta þeirra fjármuna sem ríkið fær í sinn hlut af losun haftanna svo þeir fari örugglega í að greiða niður skuldir - og ekkert annað.

\"Eða eru miklar líkur á að önnur hegðun einkenni stjórnmálamenn sem bera ábyrgð á ríkissjóði - en okkur hin,\" spyr Margrét í pistli sínum á hringbraut.is.