Treystir átakamenningu í sessi

"Ég held að það sé alveg ljóst að þessi umdeildi gjörningur stjórnvalda að taka ESB-málið af dagskrá án aðkomu þings og þjóðar muni treysta átakamenningu í sessi í íslenskum stjórnmálum," segir Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri í samtali við hringbraut.is. Hann segir að frá fræðilegu sjónarmiði og raunar einnig pólitísku sé óskiljanlegt af hverju stjórnvöld velji hér að kasta stríðshanskanum: "Það hefði ekkert kostað að láta málið liggja. Biðin að hálfu Evrópusambandsins hefði ekki verið skilyrt," segir hann og telur einu skýringuna á þessari ákvörðun stjórnarinnar vera þá að hún vilji með þessu háttalagi gera öðrum stjórnvöldum í framtíðinni erfitt um vik að sækja aftur um aðild að ESB. "Það er verið að eyðileggja ferlið með einbeittan skemmdarvilja að leiðarljósi og rýra trúverðugleika þjóðarinnar þegar og ef hún sækir aftur um. Það er alveg augljóst," telur Grétar Þór og segir þá pólitísk eftirmál þessa vera órædd: "Ég held að þetta muni skýra línur innan Sjálfstæðisflokksins og auka mjög á pólitíska möguleika Viðreisnar þó ekki væri sakir annars en að stór hópur alþjóðasinnaðra sjálfstæðismanna sem á að venjast orðheldni hefur trúað því í lengstu lög að svona myndi aldrei fara."