Hreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings, sem nú afplánar 5 og hálfs árs dóm á Kvíabryggju fyrir þátt sinn í Al-Thani málinu, gagnrýndi harðlega í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að fá ekki að vera viðstaddur öll réttarhöldin sem nú er í gangi í stóra markaðsmisnotkunarmálinu sem tengist sama banka, en Hreiðar Már er þar á meðal ákærðu.
Réttarhöldin standa yfir í fimm vikur og kom til greina að aka Hreiðari daglega í lögreglufylgd á milli fangelsisns á Snæfellsnesi og héraðsdóms, en kostnaðurinn við það reyndist vera of mikill. Þá bauðst fanganum að dvelja í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg á meðan á yfirheysrlum fyrir dómi stendur, en hann upplýsti í dómssal í morgun að hann hefði afþakkað það boð þar eð hann treysti sér ekki til að dvelja í því fornfræga tukthúsi.
Hreiðar Már kom í fylgd lögreglumanns til réttarhaldanna í morgun og lýsti því yfir áður en vitnaleiðslur hófust yfir honum að réttarhöldin væru aðför að heiðvirðu fólki sem unnið hefði innan Kaupþings; saksóknarar jafnt sem dómarar væru teymdir áfram af lygi og ósannindum.