Tregari að veita konum lán

Þrjár af hverjum fimm konum í atvinnulífinu telja að lánastofnanir séu tregari til að veita konum lán  til atvinnureksturs en körlum.  

Þetta kemur fram í niðurstöðum viðhorfskönnunar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir A-FKA (Atvinnurekendadeildar Félags kvenna í atvinnulífinu) þar sem  niðurstöður Félagsvísindastofnunar árið 1997 eru bornar saman við niðurstöður nú, 20 árum síðar.  

Í ljós kemur að fyrir tuttugu árum var dæmigerð kona í atvinnurekstri á aldrinum 35 til 49 ára eða tæpur helmingur þeirra og þriðjungur með grunnskólapróf. Fyrirtækin voru yngri en 5 ára eða 40 prósent fyirtækjanna og starfsmenn færri en fimm í flestum tilvikum.  

Árið 2016 var konan í atvinnurekstri í um helmingi tilfella 50 ára eða eldri og með háskólapróf.  Fyrirtækin eru nú eldri, aðeins rúmlega 20 prósent innan við fimm ára. Í flestum tilfellum voru fyrirtækin þó ennþá með 5 starfsmenn eða færri. Fyrirtæki með fleiri en 20 starfsmenn voru 4 prósent í fyrra en 2 prósent árið 1997.  

Ein stærsta breyting sem hefur orðið milli áranna 1997 og 2016 lýtur að menntun.  Um helmingur kvenna í atvinnurekstri var með háskólapróf í fyrra en aðeins 16 prósent fyrir tuttugu árum síðan.

Tregða kvenna til að veðsetja fasteign fjölskyldunnar fyrir lánum vegna atvinnureksturs er staðreynd nú sem fyrr. Mikill meirihluti svarenda eða 84 prónst telja að konur séu síður tilbúnar til þess en karlar.  Og þrjár af hverjum fimm telja að lánastofnanir séu tregari til að veita konum lán  til atvinnureksturs en körlum.  

Frekari niðurstöður verða kynntar á opnum fundi FKA í Iðnó á morgun, fimmtudag.