Traust til kirkjunnar fer þverrandi

Rúmlega 37% þeirra sem taka afstöðu bera mikið traust til Þjóðkirkjunnar en fyrir ári síðan sögðust fjórir af hverjum tíu gera það.

Traust hefur því fallið um þrjú prósentustig milli ára.

Þetta kemur fram í þjóðarpúlsi Gallup.

Ríflega 31% ber lítið traust til Þjóðkirkjunnar og svipað hlutfall hvorki mikið né lítið. Konur bera meira traust til Þjóðkirkjunnar en karlar, fólk ber almennt meira traust til Þjóðkirkjunnar eftir því sem það er eldra og íbúar landsbyggðarinnar bera almennt meira traust til Þjóðkirkjunnar en höfuðborgarbúar. Þeir sem kysu Framsóknarflokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag bera meira traust til Þjóðkirkjunnar en þeir sem kysu aðra flokka og þar á eftir koma þeir sem kysu Sjálfstæðisflokkinn. Þeir sem styðja ríkisstjórnina bera að sama skapi meira traust til kirkjunnar en þeir sem styðja ekki stjórnina.