Traust til þjóðkirkjunnar, lögreglunnar og dómskerfisins mælist minna nú en í fyrra. Þetta kemur fram í árlegum Þjóðarpúlsi Gallups sem birtur er í dag. Traustið dregst saman um 7 og 8 prósent.
Þrír af hverjum tíu bera mikið traust til þjóðkirkjunnar, 36 prósent treysta dómskerfinu vel og 77 prósent bera mikið traust til lögreglunnar. Hlutfallið gagnvart lögreglu er nokkuð lægra en í fyrra en þá hafði það hækkað talsvert frá árinu á undan.
Flestir bera mikið traust til Landhelgisgæslunnar líkt og áður eða rúmlega 90 prósent þeirra sem taka afstöðu. Embætti forseta Íslands er í fyrsta skipti í öðru sæti en átta af hverjum tíu bera mikið traust til þess.
Traust til heilbrigðiskerfisins mælist hærra en fyrr, um 65 prósent bera mikið traust til þess.
Ríflega 50 prósent bera mikið traust til umboðsmanns Alþingis, rúmlega 48 prósent til ríkissaksóknara og tæplega 47 prósent til ríkissáttasemjara, sem eru svipuð hlutföll og í fyrra.
Rétt rúmlega 34 prósent bera mikið traust til Seðlabankans, svipað og í fyrra.
Tæplega 29 prósent bera mikið traust til Alþingis, 28 prósent til Fjármálaeftirlitsins, hátt í 24 prósent til borgarstjórnar Reykjavíkur og tæplega fimmtungur til bankakerfisins. Þetta eru rétt rúmlega þau hlutföll sem mældust í síðasta Þjóðarpúlsi.