Ein mestu tíðindin í nýrri könnun MMR þar sem spurt er um traust til ýmissa stofnana eru að traust almennings á fjölmiðlum hrynur um 8 prósentustig milli ára. Traust til fjölmiðla mælist nú aðeins 11,1% og nýtur Alþingi meira trausts en fjölmiðlar.
Mjikil umræða hefur orðið á árinu um eignarhald Morgunblaðsins, yfirmannaskipti hjá 365 og fleiri áberandi mál í fjölmiðlaheiminum á árinu.
Í fréttaskýringu Hringbrautar á dögunum var farið yfir sviðið og því haldið fram að þrjár blokkir bítist nú einkum um hituna. Ein er 365, önnur útgerðarmenn að baki Mogganum og þriðja er veldi Björns Inga Hrafnssonar en óvissa ríkir um hvaðan hann hefur fengið fé til uppkaupa á fjölda blaða og hefur Stundin sagt frá því að Vefpressan hafi ekki skilað ársreikningi í blóra við útrunninn frest.
Skoða má niðurstöður MMR í heild hér.