Refsiaðgerðum loks skellt á rússa

Bandaríkin hófu í dag refsiaðgerðir gegn Rússum sem Bandaríkjaþing ákvað fyrir nokkru, en dregist hafði að Hvíta húsið léti verða af.

Refsiaðgerðirnar beinast gegn stofn­un­um, fyr­ir­tækj­um og 19 ein­stak­ling­um og eru tilkomnar vegna af­skipta Rússa að for­seta­kosn­ing­un­um í fyrra og tölvu­árása. Eignir verða frystar, ferðabann sett á ákveðna aðila og bandarískum fyrirtækjum meinað að eiga viðskipti við þá.

Aðgerðirnar eru þær víðtækustu í garð Rússa í forsetatíð Trumps og koma einnig í kjölfar alþjóðasamstöðu með Bretum í kjölfar eiturefnaárásarinnar í Salisbury.