Toyota auglýsingar villandi

Neyt­enda­stofa hef­ur bannað Toyota á Íslandi að full­yrða í aug­lýs­ing­um sín­um að Hybrid-bif­reiðar væru 50% raf­drifn­ar án þess að nán­ari skýr­ing­ar komi fram. Með þessu hafi fyr­ir­tækið brotið gegn ákvæðum laga um eft­ir­lit með viðskipta­hátt­um og markaðssetn­ingu.

Þetta kem­ur fram á vef Neyt­enda­stofu.

Þar seg­ir að stofn­un­in hafi farið fram á að Toyota sannaði full­yrðingu í aug­lýs­ing­um sín­um um að Hybrid-bif­reiðar væru 50% raf­drifn­ar. Kom það til í kjöl­far ábend­inga og kvart­ana frá neyt­end­um.

Þá seg­ir, að með svör­um Toyota hafi veirð lagðar fram rann­sókn­ir um eldsneyt­isnýt­ingu Hybrid-bif­reiða Toyota. Í rann­sókn­un­um sé mælt að hve miklu leyti bif­reiðarn­ar noti aðeins raf­magn.

Nánar á mbl.is;

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/06/30/segja_auglysingar_toyota_villandi/