Tortryggir salek samkomulagið

Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi ráðherra, segist hafa efasemdir um að SALEK samkomulagið nái marki sínu. Hann telur að með því sem hann kallar varnarvísitölu mætti semja um vísitölubundið launabil hjá opinbera vinnumarkaðnum sem hinn almenni tæki svo mið af. Hann er totrygginn gagnvart SALEK sem hann telur að boða handjárnun launamanna. „Blóðið á alltaf að renna í æðum manna“, segir Ögmundur á Hringbraut í kvöld og meinar að friður á vinnumarkaði sé ekki endilega jákvæður þar sem alltaf verði að semja reglulega um kaup og kjör, slíkt geti aldrei staðnað.