„Það er ekkert launungarmál að hjá okkur sumum innan Viðreisnar ríkir nokkur tortryggni í garð Sjálfstæðisflokksins.“ Þannig skrifar Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, þegar stjórnarmyndarviðræður flokkar þriggja eru að hefjast.
„Miðjuflokkarnir fengu ekki meirihluta í kosningunum fyrir tveimur vikum. Af því leiðir að hafi þeir hug á að hafa áhrif með þátttöku í stjórn, verða þeir annað hvort að ræða við flokka hægra megin eða vinstra megin við miðju. Almennt er það reyndar meðal lykilverkefna miðjuflokka, eins og Viðreisn talaði mikið um í aðdraganda kosninga, að draga aðra flokka að miðjunni og ýta þannig undir öfgaleysi og draga úr pólariseringu.
Til upprifjunar, fyrir þá sem þurfa á að halda, lúta helstu málefni okkar í Viðreisn að því að tryggja að þjóðin fái að greiða akvæði um hvort halda eigi viðræðum um Evrópusambandsaðild áfram. Komi í ljós að þjóðin kjósi með áframhaldandi viðræðum muni einnig verða þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarsamning þegar hann liggur fyrir.
Önnur lykilmálefni Viðreisnar lúta að því að tryggja að tekið verði upp markaðstengt auðlindagjald í sjávarútvegi, endurskoðun búvörusamninga og lækkun vaxta með breyttri peningastefnu. Þá vill Viðreisn að forgangsraðað verði í ríkisfjármálum í þágu heilbrigðismála og menntamála. Önnur mikilvæg málefni tengjast umhverfis- og auðlindamálum, innviðauppbyggingu, jöfnun atkvæðaréttar og útrýmingu kynbundins launamunar,“ skrifar Hanna Katrín.
„Þessi atriði eru öll uppi á borðinu nú við upphaf stjórnarmyndunarviðræðna. Ef vel tekst til verður útkoman sterk, frjálslynd og umbótasinnuð stjórn. Það er það sem við erum að stefna að. Málefnaleg útkoma mun ráða för,“ skrifar Hanna Katrín á Facebook.