Fylgi Pírata mælist nú rúm 36 prósent og hefur aldrei verið meira samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup.
Litlar breytingar eru á fylgi stjórnmálaflokkanna milli mánaða eða á bilinu og er ekki auðséð af niðurstöðum að hið svokallaða Tortólamál hafi fækkað stuðningsmönnum innan Framsóknarflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn er með 23,2 prósent, Framsóknarflokkurinn með 12,1 prósent og Vinstri græn með 11 prósent. Þá koma Samkylkingin með 9,5 prósent, Björt framtíð með 3,2 og Viðreisn með 2,1 prósent. Fylgi Viðreisnar birtist nú í fyrsta sinn í þjóðarpúlsi þar sem það mælist meira en áður.
Könnunin var gerð dagana 25. febrúar til 30.mars og ekki er marktækur munur á fylgi flokkanna þegar það er greint eftir vikum.
Tæp 10 prósent aðspurðra sögðust skila auðu eða ekki greiða atkvæði ef kosið yrði til Alþingis nú. Ellefu prósent gefa ekki upp afstöðu sína.