Tapaði akureyri á mistökum í útsvari?

Ólga ríkir meðal Akureyringa eftir að Hafnarfjörður sló Akureyri út í spurningaþættinum Útsvari á föstudagskvöld. Lið Hafnarfjarðar sigraði Akureyri með 86 stigum gegn 67.

Lið Hafnarfjarðar skipuðu þau Karl Guðmundsson, Guðlaug Kristjánssdóttir og Kristbjörn Gunnarsson. Í liði Akureyrar voru Urður Snædal, Ragnar Elís Ólafsson og Ólafur Helgi Theódórsson.

Hermt er meðal bæjarbúa að Hafnfirðingar hafi unnið keppnina á spurningu þar sem spurt var um sameiginlegan arkitekt að Arnarhreiðri Hitlers og Skriðuklausturs. Hafi Hafnfirðingar fengið rétt fyrir svar sitt, Fritz Höger, og með því hafi munurinn orðið meiri en svo að Akureyringar gætu sigrað.

Höger er sannarlega arkitekt Skriðuklausturs en Á vef Skriðuklausturs er rætt um „þjóðsögu“ sem kviknað hafi á 6. eða 7. áratugnum og  komist á kreik á Íslandi „sú kjaftasaga að sami arkitekt væri að Gunnarshúsi og svokölluðu Arnarhreiðri Hitlers, Das Kehlsteinhaus, sem byggt var í nágrenni Berchtesgaden syðst í Þýskalandi 1938. Endaði það með því að sú staðleysa birtist á prenti og varð að útbreiddum misskilningi. Enginn fótur er fyrir þessum sögusögnum. Arnarhreiðrið teiknaði arkitektinn Roderich Fick sem hannaði fleiri byggingar fyrir foringja Þriðja ríkisins í Obersalzberg. Stíll þessara tveggja húsa er hins vegar áþekkur og bæði sækja útlit sitt í hefðbundinn suður-þýskan sveitastíl,“ segir á vef Skriðuklausturs.

Hringbraut hefur sent áhöfn Útsvars fyrirspurn en skömmu eftir að þættinum lauk í gærkvöld fóru símalínur fréttamanns Hringbrautar að rauðglóa þar sem almenningur benti á ofangreint og taldi fréttnæmt og óréttlátt.

Ólíklegt er þó talið að úrslitum verði breytt þótt mistök hafi verið gerð - ef sú verður staðfest niðurstaða.

Uppfært kl. 10:06:

Hringbraut var bent á eftir að frétt okkar var birt að Rúv hefði verið búið að senda athugasemd til landsmanna vegna þáttar gærkvöldsins. Hún er eftirfarandi:

Í viðureign Akureyrar og Hafnarfjarðar í síðasta Útsvarsþætti var spurt hvaða sögufrægu íslensku byggingu þýski arkitektinn Fritz Höger hefði teiknað.

Hafnfirðingar svöruðu réttilega að það væri Skriðuklaustur á Fljótsdal og fengu tíu stig að launum. Í spurningunni var því haldið fram að Höger hefði líka teiknað Arnarhreiður Hitlers. Þarna reiddi spurningahöfundur í góðri trú sig á fullyrðingu þess efnis í ritverkinu Landið þitt Ísland sem við nánari skoðun reyndist ekki á rökum reist. Arkitektinn að Arnarhreiðrinu hét Roderich Fick. Þessi meinlega villa í aðdraganda hinnar eiginlegu spurningar breytir því hins vegar ekki að spurningin og svarið við henni eru byggðar á staðreyndum. Skriðuklaustur er sögufræga húsið sem Höger teiknaði.\"

 

Sjá athugasemd Rúv hér.