Apple hefur sett tónlistarveitu sína Apple Music í fluggír og hefur nú næstum náð Spotify í fjölda áskrifenda.
Apple Music er nú með um 48 milljónir áskrifenda, en í september voru þeir ekki nema 30 milljónir talsins. Apple á þó enn talsvert í land til að ná Spotify sem hefur nú um 70 milljónir áskrifenda.
Apple er nýbúið að ráða nýjan framkvæmdastjóra, Oliver Schusser, yfir tónlistarveituna og hyggur á enn frekari landvinninga. Fyrr á þessu ári skýrði The Wall Street Journal frá áformum Apple um að hefja framleiðslu sjónvarpsefnis og kvikmynda undir eigin nafni. Þessi áform eru líka liður í samkeppninni við Spotify, sem tilkynnti samstarf við Hulu myndveituna í síðustu viku.