Allir helstu tónlistarskólar Reykjavíkur eru svo ill staddir fjárhagslega að hrein óvissa ríkir um það hvort þeir geti haldið uppi kennslu með viðeigandi hætti á næsta skólaári.
Björn Blöndal, formaður borgarráðs og staðgengill borgarstjóra segir í Fréttablaðinu í morgun að ríkið dragi lappirnar í fjármögnun tónlistarnáms,en fjárstuðningur hins opinbera við tónlistarnám hefur verið með þeim hætti að ríkið styður framhaldsnám í tónlist, en kennsla á miðstiði tónlistar hefur verið á ábyrgð sveitarfélaga: \"Við klögum þennan bráðavanda upp á ríkið, en þetta eru þó ansi snúin mál,“ segir Björn við blaðið í dag.
Sumarið 2011 var gert samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um nokkur hundruð milljóna króna fjárframlag ríkissjóðs til tónlistarmenntunar á framhaldsstigi. Fjárhæðin átti að ganga upp í kennslukostnað allra framhaldsstigsnema á landinu.
Að sögn Þórunnar Guðmundsdóttur, stjórnarmanns Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík, hefur nemendum þó fjölgað og var ekki tekið tillit til launahækkana í kjarasamningum þegar samkomulagið var gert. Töluvert vanti því upp á að fjárhæðin dugi og er uppsafnaður vandi orðinn mikill.
Að sögn Þórunnar túlkar ríkið samkomulagið þannig að sveitarfélögum beri að brúa bilið, enda beri þau ábyrgð samkvæmt lögum. Borgin telji hins vegar að samkomulagið aflétti ábyrgð hennar á framhaldsstiginu og neiti að borga.
\"Þetta stendur á ríkinu. Við gerðum samkomulag í vor um að setja þarna inn ákveðna peninga til að leysa bráðavanda en með skilyrði um aðkomu ríkisins. Ég stóð í þeirri meiningu þá að allt væri klappað og klárt en það er eins og það standi eitthvað á hjá ríkinu,“ segir Björn í frétt blaðsins - og á hér við samkomulag milli Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík, Reykjavíkurborgar og menntamálaráðuneytisins frá því síðastliðið vor. Þar var ákveðið að lagt yrði fram aukið fé til að tryggja rekstur skólanna. Skólarnir hafa þó ekki fengið neitt fjármagn ennþá.
Björn segir að borgin muni standa við sinn hluta samkomulagsins: \"Við skilum auðvitað okkar framlagi en það verður að því gefnu að ríkið standi við sinn hluta. Okkar framlag eitt og sér bjargar þessu ekki.“