Það er tvöfalt dýrara fyrir foreldra barna í Reykjavík að senda barn sitt í tónlistarskóla en í mörgum öðrum sveitarfélögum.
Vísbendingar eru um að börn efnaminni foreldra falli milli skips og bryggju í Reykjavík.
Fréttablaðið greinir frá þessu.
Sumir tónlistarskólar á landinu eru yfirfullir og hafna þarf fjölda nemenda sem vilja læra á hljóðfæri. Þá eru skólagjöld í hæstu hæðum.
Kristinn Örn Kristinsson, skólastjóri tónlistarskólans Allegro, segir skólagjöld í Reykjavík almennt há, hærri en í öðrum sveitarfélögum.
„Eftir hrun lækkuðu styrkir til tónlistarskóla um 20 prósent í Reykjavík, þá hvarf sellódeildin okkar,“ segir Kristinn Örn. „Það var rætt um tímabundinn niðurskurð en hann stendur óhaggaður.“
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, segir að ekki hafi fengist fjárheimild til að taka aftur niðurskurð framlaga til tónlistarskóla eftir hrun. Hann bendir á að í Reykjavíkurborg stundi um 500 nemendur tónlist í gegnum skólahljómsveitir, þar sé kostnaður á nemanda mun lægri en í tónlistarskólum eða um 33.000 krónur.
Allur kennslu- og stjórnunarkostnaður er greiddur af borginni, að sögn Helga. Árleg niðurgreiðsla fyrir hvert barn í einkanámi í tónlist sé um 600.000 krónur. Vandamálið er að sögn Helga að sumir tónlistarskólanna í borginni séu litlir, stjórnunarkostnaður og annar rekstrarkostnaður hár.
Hægt er að lesa nánast um málið á vef Fréttablaðsins.