Það er ekki hægt að segja annað en að blásið verði til stórvirkis í menningarhúsinu Hofi á Akureyri 14. febrúar næstkomandi en þá verður frumflutt tónverkið Völuspá – Ragnarök eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson.
Valgerður Guðnadóttir og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar munu sjá um flutning verksins auk kóra en Sól Hrafnsdóttir hefur hannað sjónlist sem verður partur af tónleikunum.
Goðin fara á kreik
Völuspá er nýtt sinfónískt verk eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson fyrir söngkonu, sinfóníuhljómsveit og kór. Verkið er samið upp úr ljóðum Völuspár og mun Valgerður Guðnadóttir taka að sér hlutverk Völvunnar.
Þorvaldur Bjarni hefur samið tónlist við fjölda söngleikja, má þar nefna Gosa, Benedikt Búálf og Ávaxtakörfuna. Hann er gítarleikari og lagahöfundur Todmobile og hefur samið og tekið upp tónlist fyrir allar
tegundir miðla samtímans.
Valgerður á sér frækinn feril í söngleikjum og óperum. Eftirminnileg er frammistaða hennar í Vesalingunum í uppsetningu Þjóðleikhússins árið 2011 þar sem hún söng hlutverk hinnar ólánssömu Fantine.
Ljóð Völuspár eru í dag ein okkar helsta heimild um norræna goðafræði. Í ljóðunum er sagt frá sögu heimsins, allt frá sköpun til ragnaraka og er það í gegnum samtal Völvu og Óðins sem við fáum að upplifa sögu Goðanna. Nýtt videólistaverk eftir Sól Hrafnsdóttur verður flutt samhliða verkinu og verður því varpað á bíótjald á bakvið hljómsveitina.Einnig verða flutt verkin Promotheus eftir Lizt og Pan and Echo, Dance Intermezzo, Op. 53 eftir Sibelius. Kór Hymnódía og Kammerkór Norðurlands leika þýðingarmikið hlutverk á tónleikunum.
Konsertmeistari er Greta Salóme.