Samtökin Konur í íslenskri tónlist, KÍTON harma hlut íslenskra kvenna í tónlist og benda á fáránleika þess að einungis á að heiðra sex karla og enga konu á Degi íslenskrar tónlistar á morgun.
Í tilkynningu frá KÍTÓN í dag er skorað á tónlistariðnaðinn allan að viðurkenna þann kynjahalla sem þar viðgengst, sem sjá má til dæmist í skiptingu höfundarréttartekna þar sem hlutur kvenna er eingöngu 9%, fáum tilnefningum kvenna til íslensku tónlistarverðlaunanna undanfarin ár og skorti á konum í nánast öllum þeim ráðum og nefndum sem snúa að tónlist á Íslandi.
Mikilvægt sé að hefja umræðu um rýran hlut tónlistarkvenna þegar komi að þvi að hljóta áheyrn og aðgang að fjölmiðlum, útgáfu, félögum og nefndum sem sjá megi kristallast í vali Samtóns á þeim verkum sem heiðra skuli á degi íslenskrar tónlistar.
\"Að þessu sinni eru höfundar laga og texta 6 karlar og engin kona. Hlutföllin eru því 100% á móti 0% og var það sama uppi á teningnum í fyrra. Þetta val er alls ekki í takt við þá jafnréttisumræðu sem er í gangi á Íslandi í dag og langt í frá boðlegt. Við viljum því skora á þau félög sem eiga aðild að Samtóni, STEF, SFH, FTT, FÍH, TÍ og FHF að senda frá sér yfirlýsingu þar sem þessi vandi er skoðaður og viðurkenndur auk þess sem settar eru fram tillögur að aðgerðum til að leiðrétta þann mikla kynjahalla sem er við lýði í tónlistariðnaðinum öllum,\" segir samtak kvenna í íslenskri tónlist.