Tónleikar taktlausir meðan fólk deyr

Guðrún Þórsdóttir sem situr í stjórn kjördæmaráðs Vinstri grænna, auk þess sem hún er nefndarmaður í íþróttaráði á Akureyri, telur taktlaust að efnt hafi verið til tónleika í bænum til að safna peningum fyrir sýrlenska flóttamenn.

Þetta kemur fram á fésbók Guðrúnar. Hún skrifar: „Ég veit ekki með ykkur en mér blöskraði smá þegar ég sá auglýsta tónleika til að aðstoða flóttamennina 50 sem Akureyringar ætla að taka á móti (að vísu veit ekki ekki alveg hvenær) tónleikarnir eru haldnir til að safna peningum fyrir tómstundum barnanna..... það er svakalegt taktleysi að við séum að spá í tómstundum þegar fólkið er að deyja.“

Skiptar skoðanir hafa skapast um meint taktleysi tónleikanna en m.a. er bent á að tómstundir hjálpi börnum að fóta sig í nýju umhverfi og því séu tónleikarnir gott framtak. Aðrir telja að tónleikarnir fyrirhuguðu séu sýndarmennska.

Í umræðu um móttöku flóttamanna hefur verið gagnrýnt að í stað þess að bregðast strax við neyðinni fari tími, peningar, skriffinnska og orka í að ganga frá kerfismálum hér innanlands.

Í gær upplýstu stjórnvöld að kominnn væri nafnalisti og standa vonir til að hægt verði að taka á mótti flóttafólkinu sem mun dreifast til Akureyrar, Kópavogs og Hafnarfjarðar fyrir áramót.