Tónleikadagskrá veldur usla: „Hvernig gerist þetta bara aftur og aftur og aftur?“

Hátíðarhöld um verslunarmannahelgina verða víða með breyttu sniði í ár vegna heimsfaraldurs en 500 manna fjöldatakmark verður við lýði fram á frídag verslunarmanna.

Svo virðist sem skipuleggjendur á Egilsstöðum ætli ekki að láta það á sig fá og auglýsa nú grimmt röð tónleika um verslunarmannahelgina.

Dagskráin hefur holtið nokkra athylgi á samfélagsmiðlum en mögulega af öðrum ástæðum en skipuleggjendur hefðu vonað.

Á Twitter vekja þó nokkrir máls á því að ekki ein kona muni stíga á stokk á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Ber kynningarefni fyrir tónleikaröðina þess sterk merki.

Bergrún er meðal þeirra sem bendir á þetta og fær mikil viðbrögð við færslu sinni. Eru margir á því máli að það stingi hvað verst að þetta sé langt því frá í fyrsta skipti sem slíkur kynjahalli er áberandi á álíka tónlistarhátíðum.