Hamborgarabúlla Tómasar var stofnuð 10. apríl 2004 og var upphaflega í gömlu kaffihúsi við Geirsgötu í Reykjavík og er þar enn. Síðan eru liðin 11 ár og Búllan búin að opna útibú víðsvegar um landið. Stofnandinn, Tómas A. Tómasson, á langa sögu að baki sem brautryðjandi í sölu á alvöru hamborgurum á Íslandi og hóf útrás fyrir nokkrum árum til nágrannalanda Íslands, þ.m.t. Bretlands, Danmerkur og Þýskalands.
Hann er enn í útrás en nafnið Búllan gengur ekki í útlöndum, heldur var enska nafnið „Tommi´s Burger Joint“ valið sem nafn á staðina erlendis sem hafa verið að opna hver á fætur öðrum, nú síðast í Malmö.
Tómas er gestur Sigurðar K. Kolbeinssonar í þættinum Grillspaðinn sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 21.45 í kvöld og í þættinum mun Tómas sýna svo ekki verður um villst hvernig útbúa má Búlluborgara og hvernig hann er steiktur og matreiddur. Það er ekki úr vegi að kynna sér þetta mál nú á hásumri þegar grillstemning landsmanna er í hámæli.