Tommi talar um líf sitt og list

Í minningu Tómasar M. Tómassonar, tónlistarmanns, sem féll frá í liðinni viku, endursýnir Hringbraut í kvöld viðtalsþáttinn Mannamál þar sem listamaðurinn ræddi við Sigmund Erni um einstakan feril sinn og óvenjulega lífsleið.

Þátturinn var tekinn upp um miðjan apríl á síðasta ári, litlu áður en Tómas greindist með þann erfiða sjúkdóm sem ríflega hálfu ári síðar dró hann til dauða. Í viðtalinu er Tommi í essinu sínu, enda orðlagður sögumaður á sinni tíð - og skreytir samtal þeirra Sigmundar Ernis með kostulegum bransasögum eins og honum einum var lagið. Viðtalið er einlægt, hlýtt og hispurslaust.

Tómas verður jarðsunginn næstkomandi föstudag. Hann var 63 ára þegar hann lést.

Þátturinn er á dagskrá klukkan 20:30 í kvöld.