Tomasz Þór segist ekki hafa beitt líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi

Tomasz Þór Veruson fjallgöngumaður segir í pistli sem hann birti á Vísi í dag að hann hafi aldrei beitt líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi.

Hann viðurkennir þó að hafa beitt andlegu ofbeldi og stundað framhjáhald í báðum samböndum sínum en segist hafa beðist afsökunar á því.

Tomasz lýsir því hvernig atvinna hans hefur beðið mikla hnekki eftir að umfjöllun um hann birtist fyrr á þessu ári. En hann segir að 95 prósent viðskiptavina sinna hafi afpantað ferðir með ferðaþjónustufyrirtæki hans innan tveggja sólarhringa frá birtingu. Þannig sé honum enginn greiði gerður með ásökunum sem hann telur að eigi ekki við rök að styðjast.

„Frásögnin sem birt var í fjölmennum hópi kvenna á Facebook tileinkuðum útivist endaði á ósk um að sniðganga mig sem og fyrirtækið mitt fyrir fullt og allt. Hjá fyrirtækinu störfuðu fimm leiðsögumenn, þrjár konur og tveir karlmenn sem átti nú að sniðganga líka fyrir störf þeirra fyrir fyrirtækið og tengsl þeirra við mig,“ segir Tomazs.

Tomasz lýsir því einnig í pistli sínum hvað það er sem hann telur að sé ranglega borið upp á sig:

„Fyrir rúmum fimm mánuðum síðan stígu tvær konur fram og lýstu ofbeldi sem þær sögðust hafa orðið fyrir í nánu sambandi við mig. Önnur þeirra, Eyrún, setti fram ítarlegar lýsingar á okkar stutta sambandi og hvernig það hafi þróast, í langri og átakanlegri Facebook færslu. Ýmsar tegundir ofbeldis komu þar fram andlegt, líkamlegt og kynferðislegt. Hin konan, Vilborg Arna, kom svo í kjölfarið og notaði orðið “heimilisofbeldi” í stuttum og óljósum pistli þar sem hún lýsti okkar þriggja ára sambandi. Þessari færslu var svo fylgt eftir nokkrum dögum síðar með sjónvarpsviðtali þar sem orðið “heimilisofbeldi” kom aftur fyrir ásamt þökkum til mín fyrir stuðning sem ég hafði sýnt í gegnum krefjandi tíma í fjallamennsku.“

Hægt er að lesa pistil Tomasz Þórs í heild sinni hér